Leiðbeiningar
Notkunarleiðbeiningar með yfirlestri á heimasíðum:
Vefpúki getur lesið yfir heimasíðu og skilað henni til baka óbreyttri eða aðeins textanum sem á henni er. Í báðum tilvikum eru röng orð merkt sérstaklega.
Til að láta Vefpúka lesa yfir heimasíðu og skila henni til baka óbreyttri með röngum orðum merktum sérstaklega er:
- Slóð síðunar slegin inn í gluggann Slóð.
- Undir Niðurstöður birtast sem er möguleikinn Vefsíða valinn.
- Smellt á Lesa.
Til að láta Vefpúka lesa yfir heimasíðu og skila aðeins texta hennar til baka með röngum orðum merktum sérstaklega er:
- Slóð síðunnar slegin inn í gluggann Slóð.
- Undir Niðurstöður birtast sem er möguleikinn Texti valinn.
- Smellt á Lesa.
Þegar músarhnappi er haldið yfir rangt stafsettu orði þá birtir Vefpúki lista með tillögum að réttu orði.
Vinsamlegast athugið:
Vefpúkinn getur átt í erfiðleikum með að lesa yfir vefsíður sem byggjast að miklu
leyti upp á Javascript-skriftumálinu og "smákökum" (cookies).
Notkunarleiðbeiningar með yfirlestri á texta:
Vefpúki getur lesið yfir ákveðinn texta:
- Textinn er annaðhvort sleginn eða límdur inn í textaboxið undir Lesa yfir texta.
- Smellt er á hnappinn Lesa.
