Púki 2007

Megintilgangur Púka 2007 er að sjá notendum fyrir fljótlegum yfirlestri og leiðréttingum á texta sem er unninn í einhverjum af forritum Office XP, Office 2003 og 2007. Hann getur einnig hjálpað til við að skipta orðum á milli lína sem og flett upp samheitum og beygingum orða.

Takmarkið er að auðvelda notendum eins og framast er unnt að framkvæma þessar aðgerðir og hefur því verið ákveðið að binda Púkann áfram við Office þar sem flest utanaðkomandi forrit geta tengst því frekar en öðrum þekktum forritum. Púki 2007 hefur verið lagaður að Office 2007 pakkanum og orðasafn hans endurbætt verulega frá fyrri útgáfum.

Helstu eiginleikar Púka 2007

Saga Púkans

Púkinn á sér orðið langa sögu og hefur gengið í gegnum margvíslegar breytingar á undanförnum árum. Púkinn var í upphafi lokaverkefni í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og voru grunnhlutar hans skrifaðir á Vax-tölvu skólans á árunum 1984-1987 af Friðriki Skúlasyni.

Púki 1.0 kom út árið 1987. Það var sambærilegt forrit við Púka 2007 nema hvað það var einungis ætlað til notkunar samhliða ritvinnsluforritum í textaham (t.d. Word 3.0) á PC samhæfðum tölvum.

Púki 2.0 kom út árið 1993 eftir að Steinþór Bjarnason hafði tekið upp forritun Púkans fyrir Windows. Þessi útgáfa hafði að geyma merkar nýjungar í aðgerðavali en þær voru skjala- og orðskiptingar í texta.

Púki 3.0 kom út árið 1994 og var sú útgáfa verulega endurbætt. Helstu breytingarnar fólust í að Púki var hannaður til notkunar með Word 6.0 fyrir Windows. Sú breyting varð til þess að hægt var að bjóða upp á að fletta upp samheitum og beygingum orða, fletta upp í enskri orðabók, skipta orðum milli lína og lesa eitt orð yfir í senn.

Glugga-Púki 4.0 kom út árið 1996. Sú útgáfa var sniðin fyrir Windows 95 til að nota með Word 7 en að öðru leyti var litlu breytt.

Púki 2002 kom út árið 2001. Þessi útgáfa var sérstaklega hönnuð til notkunar með Windows XP og Office XP og voru þá bæði handbók og útlit Púka endurbætt.

Púki 2003 kom út árið 2003. Með þessari útgáfu var stuðningi bætt við fyrir Office 2003. Orðasafn Púka 2003 var stækkað til muna og gert yfirgripsmeira en í fyrri útgáfum. Frá því Púki kom fyrst út hefur almenn málnotkun breyst mikið og því var nauðsynlegt að bæta og stækka orðasafnið með tilliti til þess.



Aðrar vörur frá Friðriki Skúlasyni


F-PROT Antivirus
er öflug veiruvörn fyrir heimili og fyrirtæki frá Friðriki Skúlasyni ehf.


F-Prot AVES
, veiru- og ruslpóstsía fyrir stofnanir og fyrirtæki