Að kaupa Púka 2007
Púka 2007 getur þú keypt hér á Netinu með greiðslukorti í gegnum öruggan vefþjón. Geisladiskur með Púka 2007 mun síðan berast til þín með pósti innan örfárra daga.
Þú getur einnig keypt Púkann hjá Friðriki Skúlasyni ehf, Þverholti 18, 105 Reykjavík (kort) eða í gegnum síma, 540-7400. Ennfremur má fá Púka 2007 í tölvuverslunum.
Að kaupa Púkann í gegnum Netið
Púki 2007 er einungis seldur á geisladiski sem sendur er með pósti til kaupenda.
Þegar Púki 2007 er seldur í gegnum Netið er notaður öruggur vefþjónn fyrirtækisins. Allar upplýsingar eru vandlega dulkóðaðar og þannig stundum við afar örugg netviðskipti.
Til þess að kaupa Púka 2007 í gegnum Netið þarftu einungis greiðslukort og aðgang að tölvupósti.
Verðskrá
Heimilisleyfi
- Púki 2007 kostar kr. 7.500,- m/vsk.
Uppfærsla á heimilisleyfi
- Uppfærsla úr eldri útgáfum Púka í Púka 2007 kostar kr. 1.990,- m/vsk.
Uppfærslur eru einungis fáanlegar hjá Friðriki Skúlasyni ehf., Þverholti 18, 105 Reykjavík eða í þjónustuveri Púkans í síma 540-7400.
Vinsamlegast athugið! Ef eldri útgáfa Púkans hefur sannanlega verið keypt eftir 1. desember 2006, þá veitum við uppfærslu í Púka 2007 endurgjaldslaust. Uppfærslur má sækja til Friðriks Skúlasonar ehf. Þverholti 18, 105 Reykjavík. Endurgjaldslausar uppfærslur verða einungis veittar gegn framvísun kassakvittunar.
Fyrirtækjaleyfi
Vinsamlegast hafðu samband við söludeild Friðriks Skúlasonar ehf. með tölvupósti á póstfangið: puki@puki.is eða í síma 540-7400 til þess að fá frekari upplýsingar um fjölnotendaleyfi fyrir Púka 2007.

F-PROT Antivirus er öflug veiruvörn fyrir heimili og fyrirtæki frá Friðriki Skúlasyni ehf.

F-Prot AVES, veiru- og ruslpóstsía fyrir stofnanir og fyrirtæki
