Ritvilluvörn fyrir Microsoft Office pakkann

     Púki er ritvilluvörn gerð fyrir Office hugbúnaðarpakkann frá Microsoft. Hægt er að tengja Púkann inn í öll forrit pakkans, og láta hann þannig lesa yfir texta jafnt í Microsoft Word, Microsoft Excel sem og öðrum forritum í Office hugbúnaðarpakkanum.

Púkinn getur lesið yfir texta sem skrifaður er í Office pakkanum bæði jafnóðum sem og eftir á. Þegar Púkinn rekst á ritvillu í þeim texta sem hann les yfir, strikar hann með rauðum lit undir orðið sem hann telur vera rangt.

Athugið að með kaupum á Púka fylgir leyfi til notkunar á allt að fimm tölvum heimilisins.

Eigendur að eldri útgáfum eiga kost á að uppfæra Púka á sérstöku uppfærsluverði. Hafið samband við söludeild Friðriks Skúlasonar til að panta uppfærslu.

Prófa Púka
Kaupa Púka
Meira um Púka
Ókeypis yfirlestur á vefsíðu

Sláðu inn slóðina á þeirri vefsíðu sem þú vilt láta lesa yfir og smelltu á 'Lesa':


Niðurstöður skulu birtast sem:

Meira um Vefpúkann
Nánari leiðbeiningar